
Sýna í dag tvær Soffíur við húsið sem þær urðu til
Í dag, sunnudaginn 20. september klukkan 15-17, munu bílarnir Soffía II og Soffía III verða til sýnis við gamla verkstæðishúsið í Reykholti (nú slökkvistöð), þar sem þeir voru smíðaðir og áttu lengi vel heima. Bílarnir voru um árabil skólabílar á Kleppjárnsreykjum en á sumrin notaðir í fjallferðum. Nýlega var lokið endurbyggingu Soffíu III og hefur hún nú fengið fulla skoðun. „Allir áhugasamir eru velkomnir að kíkja við. Sögð verður saga saga bílanna og uppgerðar þeirra,“ segir í tilkynningu.