Viktor og félagar hans fagna öðru marki hans. Ljósm. Jón Gautur Foto

Skagamenn skelltu Blikum

Skagamenn svöruðu fyrir slakan leik gegn KR með afgerandi hætti þegar þeir lögðu Breiðablik 4:1 á Akranesi í gær í efri hluta Bestu deildarinnar í fótbolta. Gísli Eyjólfsson kom ÍA á bragðið gegn sínum gömlu félögum og Viktor Jónsson skoraði tvívegis. Þá gerði Markús Páll Ellertsson eitt mark fyrir heimamenn. Með sigrinum jafnaði ÍA Breiðabliki að stigum og liðin berjast nú um fjórða sæti deildarinnar. Leikurinn var nokkuð jafn framan af en Skagamenn voru beittir þegar þeir pressuðu Blika og nýttu mistök gestanna vel. Gísli Eyjólfsson braut ísinn og fagnaði markinu vel þrátt fyrir að hafa áður leikið með Breiðabliki. „Mér gæti eiginlega ekki verið meira sama. Það er alltaf gaman að skora og það gerist ekki oft. Þegar það gerist þá nýtir maður tækifærið og fagnar almennilega,“ sagði Gísli í spjalli við fotbolta.net.