Fréttir

true

Stækkuð Akraneshöfn opnar á ný tækifæri

Framkvæmdum Faxaflóahafna við aðalhafnargarð á Akranesi er lokið eftir umfangsmikla endurnýjun sem staðið hefur frá vorinu 2023. Hafnarbakkinn hefur verið lengdur um 100 metra og er nú 225 metrar að lengd, en framkvæmdin er að fullu fjármögnuð af Faxaflóahöfnum. Með framkvæmdunum hefur aðstaða fyrir stærri skip batnað verulega í höfninni og eru bundnar vonir við…Lesa meira

true

Gefur út æviminningar Svefneyings

Þórður Sveinbjörnsson sleit barnsskónum í Svefneyjum á Breiðafirði um miðja síðustu öld. Hann hefur nú gefið út bókina Æviminningar Svefneyings, þar sem hann segir frá fjölskyldu sinni og öðrum íbúum Svefneyja á uppvaxtarárum sínum. Í bókinni lýsir Þórður dæmigerðu ári í eyjabúskapnum, leikjum og afþreyingu, fyrstu skólagöngu og minnisstæðum ferðum í aðrar eyjar. Hann nemur…Lesa meira

true

ÍA og Skallagrímur fá heimaleiki – Snæfell komið áfram

Dregið var í 32-liða úrslit VÍS bikarkeppni karla og kvenna í körfuknattleik í Laugardalnum í dag. Vesturlandsliðin ÍA og Skallagrímur fengu bæði heimaleiki, en Snæfell situr hjá í þessari umferð því liðið er þegar komið í 16-liða úrslit. Skagamenn taka á móti Álftanesi á Akranesi en Skallagrímur fær KR í heimsókn í Borgarnes. Leikir 32-liða…Lesa meira

true

Fimm mánaða afkoma langt undir væntingum

Byggðarráð Borgarbyggðar tók á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag fyrir fimm mánaða árshlutauppgjör fyrir sveitarsjóð. Rekstrarniðurstaða A hluta er neikvæð um 287 milljónir á móti 56 milljóna tapi í áætlun. Þeir liðir sem hafa mest áhrif á lakari afkomu er að framlög frá Jöfnunarsjóði eru 150 milljónum undir áætlun. Ennig eru aðrar tekjur 135 milljónum undir…Lesa meira

true

Vikan hjá lögreglunni

Í vikunni sem leið voru 82 ökumenn stöðvaðir af lögreglu og kærðir fyrir að aka of hratt. Að auki voru 522 ökumenn myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Fjórir ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sjö ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma við akstur án þess að nota…Lesa meira

true

Dagur Snorra Sturlusonar haldinn í Reykholti á laugardaginn

Snorrastofa verður með hátíð tileinkaða Snorra Sturlusyni laugardaginn 26. september kl. 14 í bókhlöðu stofnunarinnar. Þemað verður „goðafræði og sagnaskemmtan.“ Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, mun setja dagskrána og ræða stuttlega um goðafræðiverkefni Snorrastofu. Þá mun Ingunn Ásdísardóttir þjóðfræðingur fjalla um jötna í norrænni goðafræði. Síðast fyrir hlé kemur Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, með…Lesa meira

true

Hjáleið um Melasveitarveg í kvöld og nótt

Vegna ræsagerðar verður Hringvegurinn lokaður við Geldingaá í Melasveit í kvöld, þriðjudagskvöldið 22. september kl. 22:00 til kl. 8:00, miðvikudagsmorguninn 23. september. Hjáleið verður merkt á staðnum um Melasveitaveg, veg 505.Lesa meira

true

Nokkrar ár hafa bætt sig verulega frá síðasta sumri

Veiðin er víða mjög góð í ánum á Vesturlandi og bæting í þeim flestum frá því í fyrra. Nú hefur rignt talsvert og fiskurinn komið í miklum mæli í árnar. Víða er því mikið af fiski eins til dæmis í Þverá og Kjarará í Borgarfirði, en áin skilaði tæplega þúsund löxum meira nú en í…Lesa meira

true

Þrír nýir bekkir í Akraneskirkjugarði

Kirkjugarðurinn í Görðum á Akranesi hefur fengið þrjá bekki að gjöf frá tveimur líknarfélögum á Akranesi. Kiwanisklúbburinn Þyrill gaf einn bekk en Slysavarnadeildin Líf tvo. Bekkjunum hefur þegar verið komið fyrir á völdum stöðum í garðinum þar sem gestir geta tyllt sér niður og notið kyrrðarinnar. Bekkirnir eru kærkomin viðbót og munu nýtast þeim fjölmörgu…Lesa meira

true

Allt að 474 milljónir til að efla farsæld barna

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum sveitarfélaga um styrki til verkefna sem miða að því að efla farsæld og öryggi barna. Allt að 474 milljónir króna geta þannig verið til úthlutunar og er umsóknarfrestur til 13. október. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og ofbeldi gegn börnum og eiga jafnframt…Lesa meira