Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj

Fimm mánaða afkoma langt undir væntingum

Byggðarráð Borgarbyggðar tók á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag fyrir fimm mánaða árshlutauppgjör fyrir sveitarsjóð. Rekstrarniðurstaða A hluta er neikvæð um 287 milljónir á móti 56 milljóna tapi í áætlun. Þeir liðir sem hafa mest áhrif á lakari afkomu er að framlög frá Jöfnunarsjóði eru 150 milljónum undir áætlun. Ennig eru aðrar tekjur 135 milljónum undir áætlun, en útsvarstekjur hafa á móti aukist um 84 milljónir. Gjöld eru undir áætlun sem nemur 53 milljónum, fjármagnskostnaður er 40 milljónum yfir áætlun. „Þetta skilar því að niðurstaðan er 231 milljónum undir áætlunum. Þessi niðurstaða kallar á aukið rekstraraðhald og markvissa eftirfylgni með útgjöldum," segir í bókun.