
Hjáleið verður um Malsveit á þriðjudagskvöldið og til morguns. Ljósm. úr safni
Hjáleið um Melasveitarveg í kvöld og nótt
Vegna ræsagerðar verður Hringvegurinn lokaður við Geldingaá í Melasveit í kvöld, þriðjudagskvöldið 22. september kl. 22:00 til kl. 8:00, miðvikudagsmorguninn 23. september. Hjáleið verður merkt á staðnum um Melasveitaveg, veg 505.