Með verklokum hefur aðalhafnargarður tekið miklum breytingum og Akraneshöfn er nú betur í stakk búin til að sinna núverandi hafnarstarfsemi og taka á móti stærri og fjölbreyttari skipum. Nýja bryggjan er næst á mynd. Ljósm. Faxaflóahafnir

Stækkuð Akraneshöfn opnar á ný tækifæri

Framkvæmdum Faxaflóahafna við aðalhafnargarð á Akranesi er lokið eftir umfangsmikla endurnýjun sem staðið hefur frá vorinu 2023. Hafnarbakkinn hefur verið lengdur um 100 metra og er nú 225 metrar að lengd, en framkvæmdin er að fullu fjármögnuð af Faxaflóahöfnum. Með framkvæmdunum hefur aðstaða fyrir stærri skip batnað verulega í höfninni og eru bundnar vonir við að breytingarnar skapi ný tækifæri fyrir atvinnulíf og ferðaþjónustu á Akranesi. Endurbæturnar miða meðal annars að því að styrkja Akraneshöfn sem atvinnu- og þjónustuhöfn og gera henni kleift að taka á móti fjölbreyttari og stærri skipum en áður. Aðstaða til þjónustu við fiskiskip hefur batnað en jafnframt hafa skapast betri forsendur fyrir komur skemmtiferðaskipa til bæjarins.