
Vikan hjá lögreglunni
Í vikunni sem leið voru 82 ökumenn stöðvaðir af lögreglu og kærðir fyrir að aka of hratt. Að auki voru 522 ökumenn myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Fjórir ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sjö ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað. Aðrir sjö ökumenn voru stöðvaðir þar sem þeir höfðu ekki tilskilin réttindi til aksturs þeirra ökutækja sem þeir voru að aka. Einn var í vikunni kærður fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur.