Gefur út æviminningar Svefneyings

Þórður Sveinbjörnsson sleit barnsskónum í Svefneyjum á Breiðafirði um miðja síðustu öld. Hann hefur nú gefið út bókina Æviminningar Svefneyings, þar sem hann segir frá fjölskyldu sinni og öðrum íbúum Svefneyja á uppvaxtarárum sínum. Í bókinni lýsir Þórður dæmigerðu ári í eyjabúskapnum, leikjum og afþreyingu, fyrstu skólagöngu og minnisstæðum ferðum í aðrar eyjar. Hann nemur síðan við Héraðsskólann í Reykholti í Borgarfirði og er fjóra vetur í Menntaskólanum á Akureyri. Eftir stúdentspróf heldur hann til Reykjavíkur og kynnist þar tilvonandi eiginkonu sinni, Lilju Magnúsdóttur, og stofnar fjölskyldu.