Fréttir

true

Styrkja sjóvörnina við Ólafsvíkurenni

Fyrirtækið Stafnafell í Snæfellsbæ er þessa dagana að lengja sjóvörnina utan við Ólafsvíkurenni. Verkið er unnið fyrir Vegagerðina. Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir að rofvörn og fyllingar verði bættar. „Um 50 metrar að núverandi grjótfláa verður endurbyggður auk þess sem sjóvarnargarðurinn verður lengdur um 330 metra til vesturs.“ Kristinn segir að efnið sæki Stafnafell í grjótnámuna…Lesa meira

true

Nanna Vilborg fulltrúi Íslands í pallborði í Eistlandi

Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála og LIFE-Icewater hjá Grundarfjarðarbæ, var fulltrúi Íslands í pallborðsumræðum á Nordic-Baltic LIFE ráðstefnunni sem nýverið fór fram í Vihula í Eistlandi. Ráðstefnan er árlegur samráðsvettvangur LIFE-verkefna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum þar sem sérfræðingar, sveitarfélög og stofnanir bera saman bækur sínar um náttúruvernd, endurheimt og sjálfbærar lausnir. Einn…Lesa meira

true

Ásgerður Hafdís ráðin skipulagsfulltrúi

Ásgerður Hafdís Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar og tekur hún til starfa 1. október næstkomandi. Ásgerður er byggingarfræðingur að mennt frá Horsens í Danmörku og er jafnframt að ljúka meistaragráðu í skipulagsfræði við LbhÍ. Hún býr yfir reynslu af skipulagsmálum og opinberri stjórnsýslu og hefur komið að fjölbreyttum verkefnum á sviðinu. Meðal annars hefur…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Ólafsbraut í Ólafsvík

Talsverðar framkvæmdir eru nú í gangi við Ólafsbraut, stofnveginn um Ólafsvík. Þar sem unnið við endurnýjun lagna og gangstétta. Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að fjórir aðilar komi að verkefninu. Rarik endurnýjar heimtaugar í ljósastaura, Vegagerðin kemur að gatnagerð, Míla að lagningu ljósleiðara og Snæfellbær að endurnýja gangstétta. „Við reynum að hafa…Lesa meira

true

Vindhraðamælingar í Hvalfjarðargöngum

Vinna hefst í Hvalfjarðargöngum við vindhraðamælingar að kvöldi þriðjudagsins 15. september, verður aftur miðvikudagskvöldið 16. september, en lýkur að morgni 17. september nk. Vinna þessu stendur yfir frá klukkan 23:00 til 06:30. Einhverjar tafir kunna að verða á umferð á meðan þessar prófanir fara fram. Forgangsakstur neyðarbifreiða hefur þó ætíð forgang um göngin,“ segir í…Lesa meira

true

Haldið á slóðir fjallmanna á Arnarvatnsheiði – myndasyrpa

Það var komið yfir nónbil síðastliðinn föstudag þegar blaðamaður Skessuhorns hélt á Arnarvatnsheiði í þeim erindagjörðum að heilsa upp á leitarmenn þar. Borgfirðingar halda í leitum til í tveimur skálum, annars vegar við Úlfsvatn og hins vegar í Álftakróki. Á síðarnefnda staðnum halda þeir til sem fara lengst, leita allt upp í Fljótsdrög og eru…Lesa meira

true

Litrík gleði í litahlaupi Grunnskóla Grundarfjarðar – myndasyrpa

Þriðjudaginn 8. september var árlegu litahlaupi Grunnskóla Grundarfjarðar hleypt af stað með tilheyrandi fjöri. Grunnskólinn stendur fyrir hlaupinu en allir bæjarbúar eru þátttakendur. Til að mynda voru einhverjar litastöðvar mannaðar af fyrirtækjum bæjarins og aðrar af eldri borgurum og nemendum Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Veðrið lék við hlauparana og var ekki annað að sjá en að allir…Lesa meira

true

Ungt listafólk hvatt til sköpunar í Hvalfjarðarsveit

Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar kallar eftir listaverkum frá börnum og ungmennum í sveitarfélaginu, 18 ára og yngri. Verkin verða sýnd á Listasýningu unga fólksins sem haldin verður í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar í tengslum við Barnamenningarhátíð Vesturlands í október. Markmiðið er að gefa ungu fólki vettvang til að tjá sig, virkja sköpunarkraftinn og leyfa fjölbreyttum hugmyndum að…Lesa meira

true

Sigrún Ósk og Guðmundur stýra nýjum spurningaþætti á RUV

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur látið af starfi upplýsingafulltrúa Akraneskaupstaðar og hefur ráðið sig til starfa hjá Ríkisútvarpinu. Þar mun hún ásamt Guðmundi Pálssyni stýra nýjum spurningaþætti í sjónvarpi; Landsleikar, sem verða í beinni útsendingu á laugardagskvöldum þar sem bæjarfélög etja kappi. Þættirnir hefja göngu sína síðar í þessum mánuði. „Þetta verður samsuða af spurningum, þrautum,…Lesa meira

true

Miklar endurbætur framundan á Vestfjarðarvegi um Dali

Sveitarstjórnarfulltrúar, sveitarstjóri og starfsmenn Dalabyggðar áttu nýverið samráðsfund með svæðisstjóra og stjórnendum Vegagerðarinnar á Vestursvæði. Fundurinn var haldinn að frumkvæði sveitarstjórnar Dalabyggðar með það að markmiði að fara yfir stöðu samgangna- og innviðamála í sveitarfélaginu, ræða helstu áskoranir, forgangsverkefni næstu ára og efla áfram gott samstarf sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar. Á fundinum var meðal annars fjallað…Lesa meira