Fréttir

true

Framkvæmdir við Ólafsbraut í Ólafsvík

Talsverðar framkvæmdir eru nú í gangi við Ólafsbraut, stofnveginn um Ólafsvík. Þar sem unnið við endurnýjun lagna og gangstétta. Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að fjórir aðilar komi að verkefninu. Rarik endurnýjar heimtaugar í ljósastaura, Vegagerðin kemur að gatnagerð, Míla að lagningu ljósleiðara og Snæfellbær að endurnýja gangstétta. „Við reynum að hafa…Lesa meira

true

Vindhraðamælingar í Hvalfjarðargöngum

Vinna hefst í Hvalfjarðargöngum við vindhraðamælingar að kvöldi þriðjudagsins 15. september, verður aftur miðvikudagskvöldið 16. september, en lýkur að morgni 17. september nk. Vinna þessu stendur yfir frá klukkan 23:00 til 06:30. Einhverjar tafir kunna að verða á umferð á meðan þessar prófanir fara fram. Forgangsakstur neyðarbifreiða hefur þó ætíð forgang um göngin,“ segir í…Lesa meira

true

Haldið á slóðir fjallmanna á Arnarvatnsheiði – myndasyrpa

Það var komið yfir nónbil síðastliðinn föstudag þegar blaðamaður Skessuhorns hélt á Arnarvatnsheiði í þeim erindagjörðum að heilsa upp á leitarmenn þar. Borgfirðingar halda í leitum til í tveimur skálum, annars vegar við Úlfsvatn og hins vegar í Álftakróki. Á síðarnefnda staðnum halda þeir til sem fara lengst, leita allt upp í Fljótsdrög og eru…Lesa meira

true

Litrík gleði í litahlaupi Grunnskóla Grundarfjarðar – myndasyrpa

Þriðjudaginn 8. september var árlegu litahlaupi Grunnskóla Grundarfjarðar hleypt af stað með tilheyrandi fjöri. Grunnskólinn stendur fyrir hlaupinu en allir bæjarbúar eru þátttakendur. Til að mynda voru einhverjar litastöðvar mannaðar af fyrirtækjum bæjarins og aðrar af eldri borgurum og nemendum Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Veðrið lék við hlauparana og var ekki annað að sjá en að allir…Lesa meira

true

Ungt listafólk hvatt til sköpunar í Hvalfjarðarsveit

Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar kallar eftir listaverkum frá börnum og ungmennum í sveitarfélaginu, 18 ára og yngri. Verkin verða sýnd á Listasýningu unga fólksins sem haldin verður í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar í tengslum við Barnamenningarhátíð Vesturlands í október. Markmiðið er að gefa ungu fólki vettvang til að tjá sig, virkja sköpunarkraftinn og leyfa fjölbreyttum hugmyndum að…Lesa meira

true

Sigrún Ósk og Guðmundur stýra nýjum spurningaþætti á RUV

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur látið af starfi upplýsingafulltrúa Akraneskaupstaðar og hefur ráðið sig til starfa hjá Ríkisútvarpinu. Þar mun hún ásamt Guðmundi Pálssyni stýra nýjum spurningaþætti í sjónvarpi; Landsleikar, sem verða í beinni útsendingu á laugardagskvöldum þar sem bæjarfélög etja kappi. Þættirnir hefja göngu sína síðar í þessum mánuði. „Þetta verður samsuða af spurningum, þrautum,…Lesa meira

true

Miklar endurbætur framundan á Vestfjarðarvegi um Dali

Sveitarstjórnarfulltrúar, sveitarstjóri og starfsmenn Dalabyggðar áttu nýverið samráðsfund með svæðisstjóra og stjórnendum Vegagerðarinnar á Vestursvæði. Fundurinn var haldinn að frumkvæði sveitarstjórnar Dalabyggðar með það að markmiði að fara yfir stöðu samgangna- og innviðamála í sveitarfélaginu, ræða helstu áskoranir, forgangsverkefni næstu ára og efla áfram gott samstarf sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar. Á fundinum var meðal annars fjallað…Lesa meira

true

Leitað á fjöllum og fé rekið til rétta – myndasyrpa

Göngur standa nú víða yfir á heiðum og afréttum landsins. Bændur og aðstoðarfólk þeirra halda til fjalla og framundan eru réttir. Um og eftir þessa helgi eru þannig á annan tug rétta á Vesturlandi. Fyrr í vikunni héldu gangnamenn á Arnarvatnsheiði og í gær héldu smalar áleiðis á Holtavörðuheiði. Framundan eru tveggja til þriggja daga…Lesa meira

true

Upplýsingaveita sveitarfélaga verður efld

Ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Hagstofa Íslands hafa undirritað samkomulag um áframhaldandi þróun og rekstur Upplýsingaveitu sveitarfélaga. Markmiðið er að bæta aðgengi að fjárhagsupplýsingum sveitarfélaga og skapa betri grunn fyrir greiningar, samanburð og ákvarðanatöku. Upplýsingaveitan er sameiginlegur gagnagrunnur ríkis og sveitarfélaga þar sem haldið er utan um samræmdar fjárhagsupplýsingar sveitarfélaganna. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur undanfarin…Lesa meira

true

Grindvíkingar þökkuðu fyrir framlagið og faðmlagið

„Það er frá dýpstu hjartarótum sem ég segi: Takk fyrir þetta framlag og takk fyrir þetta faðmlag og takk fyrir að vera til staðar þegar samfélagið gekk í gegnum þetta áfall,“ sagði Pétur Markan, bæjarstjóri í Grindavík, þegar fulltrúar bæjarins, Rauða krossins á Íslandi og fyrirtækisins Rio Tinto komu saman í byrjun september í tilefni…Lesa meira