
Frá vinstri er Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins á Íslandi og Sunna Björg Helgadóttir, forstjóri Rio Tinto, sem hér afhendir Pétri Markan, bæjarstjóra í Grindavík, tvær milljónir króna til samfélagslegra verkefna við uppgjör á verkefninu Viðnámsþróttur Suðurnesja. Ljósm. RKÍ
Grindvíkingar þökkuðu fyrir framlagið og faðmlagið
„Það er frá dýpstu hjartarótum sem ég segi: Takk fyrir þetta framlag og takk fyrir þetta faðmlag og takk fyrir að vera til staðar þegar samfélagið gekk í gegnum þetta áfall,“ sagði Pétur Markan, bæjarstjóri í Grindavík, þegar fulltrúar bæjarins, Rauða krossins á Íslandi og fyrirtækisins Rio Tinto komu saman í byrjun september í tilefni af því að verkefnið Viðnámsþróttur Suðurnesja, sem Rauði krossinn útfærði í samvinnu við Grindavíkurbæ með fjárstyrk frá Rio Tinto, hefur runnið sitt skeið á enda.