Oddur Björn Jóhannsson á Steinum og Kristín Kristjánsdóttir í Bakkakoti mætt upp í Fornahvamm. Texti og myndir: MM

Leitað á fjöllum og fé rekið til rétta – myndasyrpa

Göngur standa nú víða yfir á heiðum og afréttum landsins. Bændur og aðstoðarfólk þeirra halda til fjalla og framundan eru réttir. Um og eftir þessa helgi eru þannig á annan tug rétta á Vesturlandi. Fyrr í vikunni héldu gangnamenn á Arnarvatnsheiði og í gær héldu smalar áleiðis á Holtavörðuheiði. Framundan eru tveggja til þriggja daga leitir. Réttað verður í Þverárrétt á sunnudag og mánudagsmorgun, en í Fljótstungurétt, elstu hlöðnu rétt landsins sem enn er brúkuð, á sunnudagsmorgun. Þverárrétt var um langa hríð fjárflesta rétt landsins, en hefur að líkindum misst þann titil. Veruleg fækkun hefur orðið í fjárstofni Borgfirðinga og dæmi um að búskap hafi verið hætt á fjármörgum búum. Enn þarf þó að smala sömu heiðarnar þótt fénu hafi fækkað. Fleiri störf eru því lögð á þá bændur sem enn hafa fé. Þannig er dæmi um 140 kinda bú sem þarf að senda fjóra smala í fyrstu leit. Eitthvað var um að bændum hafi gengið illa að manna fjárleitir og berast raunar af því fregnir víða af landinu.