
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins fyrir hönd ríkisins, Jón Björn Hákonarson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Margrét Kristín Indriðadóttir sviðsstjóri hjá Hagstofu Íslands skrifuðu undir samkomulagið. Ljósm. Innviðaráðuneytið.
Upplýsingaveita sveitarfélaga verður efld
Ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Hagstofa Íslands hafa undirritað samkomulag um áframhaldandi þróun og rekstur Upplýsingaveitu sveitarfélaga. Markmiðið er að bæta aðgengi að fjárhagsupplýsingum sveitarfélaga og skapa betri grunn fyrir greiningar, samanburð og ákvarðanatöku. Upplýsingaveitan er sameiginlegur gagnagrunnur ríkis og sveitarfélaga þar sem haldið er utan um samræmdar fjárhagsupplýsingar sveitarfélaganna. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur undanfarin misseri unnið að umfangsmikilli endurhönnun veitunnar og tekur nú jafnframt yfir gagnasöfnun frá Hagstofu Íslands.