Fréttir

true

Þrenging verður áfram á brúnni

Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að vinna undir Borgarfjarðarbrúnni gengur vel, en þó sé ljóst að tafir hafa orðið á verkinu. „Við munum setja aðra bráðabirgðalögn ofan á brúnna til að tryggja tengingu við nægt heitt vatn í bænum [Borgarnesi, innsk. blm.] í vetur. Þrengingin á brúnni verður því áfram í vetur og hraðatakmarkanir…Lesa meira

true

Námsárangur undir meðaltali

Nýjar niðurstöður PISA 2025 voru kynntar í morgun. Þær sýna að frammistaða íslenskra nemenda er undir meðaltali OECD-ríkja og síðri en frammistaða jafnaldra þeirra annars staðar á Norðurlöndunum á öllum þremur sviðum rannsóknarinnar. Frammistaðan heldur áfram að dala í lesskilningi og stærðfræðilæsi og langtímaþróunin er skýr: Of mörg börn ljúka grunnskóla án þeirrar grunnhæfni sem…Lesa meira

true

Opið hús hjá listamönnum í Saltporti

Opið hús verður í Saltporti að Hellisgötu 1a á Hellissandi föstudaginn 11. september frá kl. 14-17. Þar gefst gestum kostur á að kynna sér listsköpun tveggja þýskra listamanna sem að undanförnu hafa haft þar vinnuaðstöðu. Annar þeirra er Gerhard König myndlistarmaður sem kom fyrst til Íslands fyrir rúmum 30 árum og hefur síðan starfað og…Lesa meira

true

Leitir og réttir framundan

Næstu daga og fram yfir helgi verða göngur og réttir víða á Vesturlandi. Á komandi viku eru a.m.k. fimmtán fjárréttir á dagskrá samkvæmt samantekt Bændasamtakanna. Um liðna helgi voru fyrstu réttir í landshlutanum, meðal annars í Kaldárbakkarétt þar sem meðfylgjandi mynd var tekin. Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að á sumum stöðum þurfa…Lesa meira

true

Í kvöld: Ganga á Búrfell við Rif

Ferðafélag Snæfellsness (FFSN) stendur fyrir kvöldgöngu á Búrfell nærri Rifi í kvöld, þriðjudaginn 8. september. Gangan hefst kl. 18 og er áætlað að henni ljúki um kl. 20:30. Lagt verður af stað frá fjárréttinni á Breið og gengið suður fyrir fjallið, þaðan sem þægileg leið liggur upp á Búrfell. Gangan er allt að sex kílómetrar…Lesa meira

true

Árni Gautur hlaut heiðursviðurkenningu KFÍA

Knattspyrnufélag ÍA veitti Árna Gauti Arasyni heiðursviðurkenningu KFÍA fyrir leik ÍA og KR á Akranesi á sunnudaginn. Viðurkenninguna hlaut hann fyrir glæsilegan knattspyrnuferil og framlag sitt til knattspyrnunnar á Akranesi. Árni Gautur hóf meistaraflokksferilinn með ÍA árið 1994 og varð þrisvar Íslandsmeistari með Skagamönnum. Síðar hélt hann utan og gerði garðinn frægan með Rosenborg, þar…Lesa meira

true

Áttu samtal um ferðaþjónustu í Hvalfirði

Ferðaþjónusta í Hvalfjarðarsveit hefur vaxið á undanförnum árum og innan sveitarfélagsins starfa fjölmargir sem bjóða upp á fjölbreytta og áhugaverða þjónustu fyrir gesti. Í ljósi þessarar jákvæðu þróunar bauð Hvalfjarðarsveit fulltrúum ferðaþjónustunnar til fundar í Stjórnsýsluhúsinu að Innrimel síðdegis í gær. Fundurinn var opinn öllum og sérstaklega var fulltrúum ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu boðið að mæta…Lesa meira

true

Kvótaárið byrjar vel í Grundarfirði

Það var líf á höfninni þegar ljósmyndari Skessuhorns kíkti við í gær. Þá var verið að ljúka við löndun úr Sigurborgu SH og löndun að hefjast úr Farsæli SH en Soffanías Cecilsson hf gerir út bæði skipin. Aflabrögð hafa verið með ágætum upp á síðkastið en auk Farsæls og Sigurborgar hafa Runóflur SH og Harðbakur…Lesa meira

true

Ók á nagladekkjum

Í vikunni sem leið voru 64 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Að auki voru 273 ökumenn myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Tveir ökumenn voru stöðvaðir og handteknir, grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna og aðrir tveir stöðvaðir og handteknir, grunaðir um ölvun…Lesa meira

true

Víkingagripir, íslenski hesturinn og fornleifar í Dölum

Fornleifafræðingurinn Atli Freyr Guðmundsson verður með þriggja erinda fyrirlestraröð um fornleifar, víkinga og menningararf Dalanna í Auðarstofu í Búðardal í haust. Fyrsta erindið verður miðvikudaginn 16. september og síðan taka við tveir fyrirlestrar í október. Fyrsta erindið, Gripir víkinganna, verður haldið miðvikudaginn 16. september. Þar mun Atli Freyr fjalla um gripi frá víkingaöld, allt frá…Lesa meira