
Verið að færa fiskikör að hafnarvoginni til vigtunar. Ljósmyndir: TFK
Kvótaárið byrjar vel í Grundarfirði
Það var líf á höfninni þegar ljósmyndari Skessuhorns kíkti við í gær. Þá var verið að ljúka við löndun úr Sigurborgu SH og löndun að hefjast úr Farsæli SH en Soffanías Cecilsson hf gerir út bæði skipin. Aflabrögð hafa verið með ágætum upp á síðkastið en auk Farsæls og Sigurborgar hafa Runóflur SH og Harðbakur EA verið að koma með afla til Grundarfjarðar. Nú er sá tími ársins að komum skemmtiferðaskipa fer að fækka og komum fiskiskipa að fjölga.