
Árni Emanúelsson, sem hefur verið að endurbyggja Saltportið frá 2018, er hér með Gerhard König. Ljósm. Saltportið.
Opið hús hjá listamönnum í Saltporti
Opið hús verður í Saltporti að Hellisgötu 1a á Hellissandi föstudaginn 11. september frá kl. 14-17. Þar gefst gestum kostur á að kynna sér listsköpun tveggja þýskra listamanna sem að undanförnu hafa haft þar vinnuaðstöðu.