
Í kvöld: Ganga á Búrfell við Rif
Ferðafélag Snæfellsness (FFSN) stendur fyrir kvöldgöngu á Búrfell nærri Rifi í kvöld, þriðjudaginn 8. september. Gangan hefst kl. 18 og er áætlað að henni ljúki um kl. 20:30. Lagt verður af stað frá fjárréttinni á Breið og gengið suður fyrir fjallið, þaðan sem þægileg leið liggur upp á Búrfell. Gangan er allt að sex kílómetrar og hækkun um 300 metrar. Af fjallinu er von á góðu útsýni yfir Snæfellsjökul, tinda Eysteinsdalssvæðisins og láglendið yst á Snæfellsnesi.