
Þrenging verður áfram á brúnni
Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að vinna undir Borgarfjarðarbrúnni gengur vel, en þó sé ljóst að tafir hafa orðið á verkinu. „Við munum setja aðra bráðabirgðalögn ofan á brúnna til að tryggja tengingu við nægt heitt vatn í bænum [Borgarnesi, innsk. blm.] í vetur. Þrengingin á brúnni verður því áfram í vetur og hraðatakmarkanir halda sér,“ segir í tilkynningu. Hraðatakmarkanir eru fyrst og fremst til að tryggja öryggi þeirra sem vinna undir brúnni.