
Svipmynd af fundinum. Ljósm. hig
Áttu samtal um ferðaþjónustu í Hvalfirði
Ferðaþjónusta í Hvalfjarðarsveit hefur vaxið á undanförnum árum og innan sveitarfélagsins starfa fjölmargir sem bjóða upp á fjölbreytta og áhugaverða þjónustu fyrir gesti. Í ljósi þessarar jákvæðu þróunar bauð Hvalfjarðarsveit fulltrúum ferðaþjónustunnar til fundar í Stjórnsýsluhúsinu að Innrimel síðdegis í gær. Fundurinn var opinn öllum og sérstaklega var fulltrúum ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu boðið að mæta og taka þátt í samtalinu.