
Ók á nagladekkjum
Í vikunni sem leið voru 64 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Að auki voru 273 ökumenn myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Tveir ökumenn voru stöðvaðir og handteknir, grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna og aðrir tveir stöðvaðir og handteknir, grunaðir um ölvun við akstur. Þá voru tveir ökumenn kærðir fyrir að nota farsíma við akstur og einn stöðvaður á bifreið sinni þar sem öll fjögur dekk bifreiðarinnar reyndust vera nagladekk. Sá fékk kæru. Þrír ökumenn voru stöðvaðir við akstur bifreiða sem þeir höfðu ekki tilskilin réttindi til að aka. Einn var kærður fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur.