
Árni Gautur ásamt þeim Eggerti formanni KFÍA og Ingimar framkvæmdastjóra. Ljósm. KFÍA.
Árni Gautur hlaut heiðursviðurkenningu KFÍA
Knattspyrnufélag ÍA veitti Árna Gauti Arasyni heiðursviðurkenningu KFÍA fyrir leik ÍA og KR á Akranesi á sunnudaginn. Viðurkenninguna hlaut hann fyrir glæsilegan knattspyrnuferil og framlag sitt til knattspyrnunnar á Akranesi.