Í Kaldárbakkarétt á sunnudaginn. Ljósm. Sigrún Ólafsdóttir

Leitir og réttir framundan

Næstu daga og fram yfir helgi verða göngur og réttir víða á Vesturlandi. Á komandi viku eru a.m.k. fimmtán fjárréttir á dagskrá samkvæmt samantekt Bændasamtakanna. Um liðna helgi voru fyrstu réttir í landshlutanum, meðal annars í Kaldárbakkarétt þar sem meðfylgjandi mynd var tekin.