Atli Freyr Guðmundsson fornleifafræðingur. Ljósm. úr einkasafni

Víkingagripir, íslenski hesturinn og fornleifar í Dölum

Fornleifafræðingurinn Atli Freyr Guðmundsson verður með þriggja erinda fyrirlestraröð um fornleifar, víkinga og menningararf Dalanna í Auðarstofu í Búðardal í haust. Fyrsta erindið verður miðvikudaginn 16. september og síðan taka við tveir fyrirlestrar í október.