Fréttir

true

Gengið um söguslóðir í Maríuhöfn

Ferðafélag Borgarfjarðar stendur fyrir gönguferð um söguslóðir við Maríuhöfn í Hvalfirði laugardaginn 5. september. Lagt verður af stað frá brúnni yfir Laxá í Kjós kl. 10 og er gangan tæplega tíu kílómetra löng og fremur létt, með lítilli hækkun. Gengið verður meðfram Laxá til sjávar og þaðan áfram út í Maríuhöfn, sem er forn verslunarstaður…Lesa meira

true

Uppskeruhátíð sumarlesturs í dag

Safnahúsið í Borgarnesi býður öllum krökkum í heimsókn kl. 16 í dag þar sem fagnað verður frábærum árangri í sumarlestursátakinu í ár; „Gúndi geithafur og grasleitin mikla.“ Um 80 börn skráðu sig til leiks og þar af skiluðu 54 börn 312 miðum í happamiðakassann sem þýðir að þau lásu í 312 klukkustundir. Sérstakur gestur dagsins…Lesa meira

true

Kennir örugg vinnubrögð við notkun keðjusagar

Símenntun á Vesturlandi stendur fyrir námskeiði í vali, notkun og viðhaldi keðjusaga laugardaginn 12. september. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa litla eða enga reynslu af trjáfellingum og vilja öðlast grunnþekkingu á öruggri notkun keðjusaga og réttum vinnubrögðum. Í fræðilegum hluta verður meðal annars fjallað um val á keðjusög, nauðsynlegan öryggis- og viðhaldsbúnaði og hvernig…Lesa meira

true

Áform um tæplega þrjú þúsund hektara skógrækt í Ljárskógum

Umhverfismatsskýrsla vegna umfangsmikilla skógræktaráforma í landi Ljárskóga í Dalabyggð hefur verið lögð fram til kynningar í Skipulagsgátt. Áformað er að planta skógi á allt að 2.780 hekturum og er frestur til að skila athugasemdum við skýrsluna til 13. október. Yggdrasill Carbon ehf. stendur að verkefninu í samstarfi við landeigendur. Heildarsvæðið sem verkefnið tekur til er…Lesa meira

true

Nýtt sundlaugardót gleður yngstu gestina í Búðardal

Gestir sundlaugarinnar í Búðardal geta nú spreytt sig á nýju og fjölbreyttu sundlaugardóti sem nýverið var tekið í notkun. Laugin var opnuð þá að nýju eftir gólfviðgerðir sem unnið hafði verið að í vikunni á undan. Stór sending barst Íþróttamiðstöð Dalabyggðar og leyndist þar ýmislegt sem ætti að gleðja yngri sundlaugargesti. Meðal annars flotdýna, kleinuhringur,…Lesa meira

true

Átak gert í skráningu fasteigna í Stykkishólmi

Sveitarfélagið Stykkishólmur hyggst fara í sérstakt átak vegna óskráðra og rangt skráðra fasteigna. Skipulagsfulltrúa hefur, í samstarfi við byggingafulltrúa, verið falið að yfirfara skráningarmál og tryggja að fasteignaskrá gefi sem réttasta mynd af eignum og mannvirkjum í sveitarfélaginu. Málið var tekið fyrir á 42. fundi skipulagsnefndar þar sem lagt var fram minnisblað skipulagsfulltrúa. Þar kemur…Lesa meira

true

Gróðursetning fjölæringa framundan á Sólvöllum

Íbúum Grundarfjarðar er boðið að taka þátt í gróðursetningargleði á lóð Leikskólans Sólvalla miðvikudaginn 16. september næstkomandi, á degi íslenskrar náttúru. Þar ætla Grundarfjarðarbær, Grunnskóli Grundarfjarðar og Leikskólinn Sólvellir að sameina krafta sína og útbúa um 50 metra langt gróðurbeð með fjölæringum og runnum. Gróðursetningin hefst klukkan 10 og eru íbúar á öllum aldri hvattir…Lesa meira

true

„Ímyndin af fóstrum á þessum tíma voru konur sem sátu með gítar og sungu fyrir börn“

Rætt við Ingunni Ríkharðsdóttur um skólamál á Akranesi í hálfa öld Ingunn Ríkharðsdóttir varði starfsævinni í að vinna með börnum. Hún hóf störf í sumarafleysingum á dagheimilinu í Akurgerði á Akranesi árið 1971 þegar hún var aðeins 16 ára gömul og lauk starfsferlinum rúmri hálfri öld síðar sem leikskólastjóri Garðasels í árslok 2023. Þegar blaðamaður…Lesa meira

true

Gull á grunnsævi – ráðstefna um tækifæri stórþörunga á Íslandi

„Stórþörungar eru verðmæt en vannýtt auðlind Íslands sem býður upp á einstök tækifæri til nýsköpunar, verðmætasköpunar og sjálfbærrar atvinnuuppbyggingar,“ segir í tilkynningu frá Breið þróunarfélagi á Akranesi. Breið stendur á morgun, fimmtudaginn 3. september, fyrir ráðstefnunni „Gull á grunnsævi – Tækifæri stórþörunga á Íslandi“ í nýsköpunarsetrinu á Akranesi. Ráðstefnan leiðir saman vísindafólk, frumkvöðla, fyrirtæki og…Lesa meira

true

Opnar nýja garnverslun í miðbæ Akraness

Verslunin Garnikó verður síðar í þessari viku opnuð við Kirkjubraut 10 á Akranesi. Garnikó er garn- og prjónaverslun. Að baki henni stendur Skagakonan Rakel Rósa sem segir viðtökurnar við Garnikó hafa farið langt fram úr þeim væntingum sem hún hafði þegar netverslunin var opnuð fyrir tæpu ári. Fyrirtækið hóf starfsemi sem netverslun með hágæða garn…Lesa meira