Pavle Estrajher mun leiðbeina á námskeiðinu. Hér er hann til vinstri ásamt Jónatan Garðarssyni og Höllu Tómasdóttur forseta Íslands. Ljósm. mm

Kennir örugg vinnubrögð við notkun keðjusagar

Símenntun á Vesturlandi stendur fyrir námskeiði í vali, notkun og viðhaldi keðjusaga laugardaginn 12. september. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa litla eða enga reynslu af trjáfellingum og vilja öðlast grunnþekkingu á öruggri notkun keðjusaga og réttum vinnubrögðum.