
Átak gert í skráningu fasteigna í Stykkishólmi
Sveitarfélagið Stykkishólmur hyggst fara í sérstakt átak vegna óskráðra og rangt skráðra fasteigna. Skipulagsfulltrúa hefur, í samstarfi við byggingafulltrúa, verið falið að yfirfara skráningarmál og tryggja að fasteignaskrá gefi sem réttasta mynd af eignum og mannvirkjum í sveitarfélaginu.