
Gengið um söguslóðir í Maríuhöfn
Ferðafélag Borgarfjarðar stendur fyrir gönguferð um söguslóðir við Maríuhöfn í Hvalfirði laugardaginn 5. september. Lagt verður af stað frá brúnni yfir Laxá í Kjós kl. 10 og er gangan tæplega tíu kílómetra löng og fremur létt, með lítilli hækkun. Gengið verður meðfram Laxá til sjávar og þaðan áfram út í Maríuhöfn, sem er forn verslunarstaður frá Þjóðveldisöld. Þar verður staldrað við, farið yfir sögu staðarins og nestið tekið upp.