
Gull á grunnsævi – ráðstefna um tækifæri stórþörunga á Íslandi
„Stórþörungar eru verðmæt en vannýtt auðlind Íslands sem býður upp á einstök tækifæri til nýsköpunar, verðmætasköpunar og sjálfbærrar atvinnuuppbyggingar,“ segir í tilkynningu frá Breið þróunarfélagi á Akranesi. Breið stendur á morgun, fimmtudaginn 3. september, fyrir ráðstefnunni „Gull á grunnsævi – Tækifæri stórþörunga á Íslandi“ í nýsköpunarsetrinu á Akranesi. Ráðstefnan leiðir saman vísindafólk, frumkvöðla, fyrirtæki og opinbera aðila sem starfa við rannsóknir, ræktun, vinnslu og nýtingu stórþörunga. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem þekking, reynsla og hugmyndir mætast og leggja grunn að auknu samstarfi og nýjum verkefnum á sviði bláa hagkerfisins.
Á dagskránni verða fjölbreytt erindi frá leiðandi sérfræðingum og fyrirtækjum sem fjalla meðal annars um rannsóknir, ræktun, matvæli, heilbrigðisvörur, líftækni og aðra verðmætasköpun úr stórþörungum. Þátttakendur fá jafnframt einstakt tækifæri til að kynnast þeim fjölbreyttu framtíðarmöguleikum sem stórþörungar bjóða upp á, meðal annars í þróun nýrra matvæla, áburðar, lyfja, gæludýrafóðurs, lífefna og annarra sjálfbærra afurða sem sífellt meira er horft til á alþjóðavísu. Samhliða verða kynningarbásar þar sem gestir geta kynnt sér nýjustu verkefni og lausnir á þessu ört vaxandi sviði.
Heiðursgestur á ráðstefnunni er Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, sem flytur opnunarávarp. Ráðstefnan er jafnframt liður í þeirri framtíðarsýn Breiðar að byggja upp Þörungakjarna á Íslandi – sameiginlegan vettvang fyrir rannsóknir, nýsköpun og þróun sem styrkir samkeppnishæfni Íslands á alþjóðlegum vettvangi og styður við sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins.
