
Rakel Rósa Þorsteinsdóttir í nýju versluninni.
Opnar nýja garnverslun í miðbæ Akraness
Verslunin Garnikó verður síðar í þessari viku opnuð við Kirkjubraut 10 á Akranesi. Garnikó er garn- og prjónaverslun. Að baki henni stendur Skagakonan Rakel Rósa sem segir viðtökurnar við Garnikó hafa farið langt fram úr þeim væntingum sem hún hafði þegar netverslunin var opnuð fyrir tæpu ári. Fyrirtækið hóf starfsemi sem netverslun með hágæða garn og prjónavörur, en fljótlega eftir opnun var lítil verslun opnuð í bílskúrnum heima hjá þeim hjónum Rakeli og Jónasi Kára á Akranesi. Sú aðstaða varð fljótt of lítil og nú tekur að sögn Rakelar næsti kafli við með opnun verslunar í hjarta bæjarins.