
Gróðurbeðin á Leikskólanum Sólvöllum sem bíða fjölæringa og runna. Ljósm. Grundarfjarðarbær.
Gróðursetning fjölæringa framundan á Sólvöllum
Íbúum Grundarfjarðar er boðið að taka þátt í gróðursetningargleði á lóð Leikskólans Sólvalla miðvikudaginn 16. september næstkomandi, á degi íslenskrar náttúru. Þar ætla Grundarfjarðarbær, Grunnskóli Grundarfjarðar og Leikskólinn Sólvellir að sameina krafta sína og útbúa um 50 metra langt gróðurbeð með fjölæringum og runnum.