Uppskeruhátíð sumarlesturs í dag

Safnahúsið í Borgarnesi býður öllum krökkum í heimsókn kl. 16 í dag þar sem fagnað verður frábærum árangri í sumarlestursátakinu í ár; „Gúndi geithafur og grasleitin mikla.“ Um 80 börn skráðu sig til leiks og þar af skiluðu 54 börn 312 miðum í happamiðakassann sem þýðir að þau lásu í 312 klukkustundir. Sérstakur gestur dagsins verður Gunni Helga, hinn margverðlaunaði barnabókahöfundur. Jafnframt geta heppnir þátttakendur unnið í happdrætti, farið verður í leiki og veitingar í lok dagskrá.