
Nýtt sundlaugardót gleður yngstu gestina í Búðardal
Gestir sundlaugarinnar í Búðardal geta nú spreytt sig á nýju og fjölbreyttu sundlaugardóti sem nýverið var tekið í notkun. Laugin var opnuð þá að nýju eftir gólfviðgerðir sem unnið hafði verið að í vikunni á undan. Stór sending barst Íþróttamiðstöð Dalabyggðar og leyndist þar ýmislegt sem ætti að gleðja yngri sundlaugargesti. Meðal annars flotdýna, kleinuhringur, pulsa, dreki, draugur, bátur og fljótandi boltakarfa. Ekki þurfti að bíða lengi eftir að dótið kæmist í notkun því fyrstu börnin voru farin að prófa það nánast um leið og myndatöku sveitarfélagsins lauk.