Fréttir

true

Sex sveitarfélög sameinast um Barnaverndarþjónustu Vesturlands

Viðauki við samning Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu verður lagður fram til kynningar á 449. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar föstudaginn 4. september nk. Samkvæmt honum verða Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur aðilar að samstarfinu ásamt Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit. Samstarfið mun bera heitið Barnaverndarþjónusta Vesturlands og nær því til sex sveitarfélaga á Vesturlandi. Núverandi…Lesa meira

true

Blóðgjöf óháð kynhneigð

Í dag, 1. september, tók gildi ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem felur í sér samræmdar reglur um blóðgjöf fyrir alla einstaklinga, óháð kyni eða kynhneigð. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir þetta langþráðan áfanga: „Við aukum öryggi blóðþega og stækkum hóp blóðgjafa. Verklagsreglur verða skýrar um að óheimilt sé að vísa blóðgjöfum frá á grundvelli kynhneigðar en…Lesa meira

true

Akranes fær yfirbragð níunda áratugarins vegna kvikmyndatöku

Akranes mun fá nokkuð breytt yfirbragð dagana 15.–23. september þegar tökur á þýskri kvikmynd fara fram á nokkrum stöðum um bæinn. Kvikmyndin gerist á níunda áratug síðustu aldar og verða því ákveðnar götur, svæði og mannvirki tímabundið færð í búning þess tíma. Íbúar og gestir mega því eiga von á að sjá ýmislegt óvenjulegt á…Lesa meira

true

Hjördís er nýr formaður FKA á Vesturlandi

Ný stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu á Vesturlandi var kosin síðastliðinn laugardag á aðalfundi félagsins. Fundurinn fór fram á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þar var Hjördís Pálsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi, kosin nýr formaður félagsins. Ásamt henni í stjórn eru Gyða Steinsdóttir fjármála- og skrifstofustjóri í Stykkishólmi sem er gjaldkeri, Steinunn…Lesa meira

true

Baldvin bjargaði dýrmætu stigi á síðustu stundu

Mikil dramatík var á Hlíðarenda í gærkveldi þegar ÍA tryggði sér 2:2 jafntefli gegn Val í Bestu deild karla í fótbolta. Baldvin Þór Berndsen varð hetja Skagamanna þegar hann skallaði boltann í netið á fimmtu mínútu uppbótartíma og tryggði ÍA afar dýrmætt stig í baráttunni um sæti í efri hluta deildarinnar. Skagamenn byrjuðu betur og…Lesa meira

true

Tæplega fimmti hver íbúi kaus utan kjörfundar

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðastliðinn laugardag er fróðlegt að skoða tölur um kjörsókn. Flestir íbúar í Norðvesturkjördæmi búa á Akranesi. Þar voru 6.056 á kjörskrá og var heildar kjörsókn 82,83%, eða nærri meðaltali á landsvísu, sem var 82,5%. Fjórar kjördeildir eru á Akranesi og var kosningaþátttaka í þeim á kjördag frá 57,8% og upp í 67,61%. Kosningaþátttaka…Lesa meira

true

Sjónvarpsfréttir Sýnar heyra brátt sögunni til

Það er skammt stórra högga á milli í fjölmiðlaflóru landsmanna. Nú hefur Sýn birt tilkynningu þess efnis að fyrirtækið hafi ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og morgundeginum, 1. september. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður því sendur út í kvöld. Starfsfólki sem vann við sjónvarpsfréttir verður sagt upp í kjölfarið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu…Lesa meira

true

Unnið við holuviðgerðir á Akrafjallsvegi í dag

Frá klukkan 9-16 í dag, mánudaginn 31. ágúst, stefnir Colas á að gera holuviðgerðir á Akrafjallsvegi. Umferð verður handstýrt á kafla þegar það þarf og hægt verður á umferðarhraða. „Vinsamlegast virðið merkingar og hraðatakmarkanir. Búast má við einhverjum smá umferðatöfum,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Afurðaverð til bænda nær ekki vísitöluhækkun

Afurðastöðvar hafa nú flestar birt verð til bænda fyrir innlagt dilkakjöt í haust. Hækkun frá síðasta ári er frá 4,0 – 5,1% en athygli vekur að tólf mánaða verðbólga samkvæmt Seðlabanka Íslands mælist nú 5,6%. Hækkunin afurðaverðs til bænda nær því ekki vísitöluhækkun. Ofan á hækkun greiða afurðastöðvarnar viðbótar álag sem útfært er með ýmsum…Lesa meira

true

Tímabil rjúpnaveiða ákveðið

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest veiðitímabil rjúpu í ár. Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum á tímabili sem ákveðið er sérstaklega innan hvers veiðisvæðis. Hér á Vesturlandi verður leyft að veiða dagana 23. október til 1. desember. Ítrekað er að sölubann er á…Lesa meira