
Sjónvarpsfréttir Sýnar heyra brátt sögunni til
Það er skammt stórra högga á milli í fjölmiðlaflóru landsmanna. Nú hefur Sýn birt tilkynningu þess efnis að fyrirtækið hafi ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og morgundeginum, 1. september. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður því sendur út í kvöld. Starfsfólki sem vann við sjónvarpsfréttir verður sagt upp í kjölfarið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forstjóra fyrirtækisins og birt á Vísi. Jafnframt verður hætt framleiðslu og útsendingu á þættinum Íslandi í dag.
Í tilkynningu sem var send starfsfólki kom fram að störfum hjá Sýn yrði fækkað, einkum meðal starfsfólks sem kæmi að fréttaframleiðslu og fréttaflutningi í sjónvarpi. Ákvörðunin er sögð tekin í ljósi breyttra neysluvenja almennings þar sem sífellt fleiri sækja sér fréttir og fréttatengt efni á stafrænum miðlum. Sýn muni því beina auknum krafti að fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og leggja áherslu á að miðla fréttum þar sem eftirspurn eftir fréttaefni er mikil. Markmið breytinganna er að styrkja fréttaþjónustu Sýnar á Vísi og Bylgjunni og tryggja um leið grundvöll fyrir sjálfbærum rekstri.
Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu sjónvarpsfrétta hjá Stöð2 og síðar Sýn. Miklar breytingar hafa orðið á íslenskum fjölmiðlamarkaði undanfarin ár. „Fréttaneysla hefur færst í auknum mæli frá línulegu sjónvarpi yfir á stafræna miðla og samhliða því hefur tekjugrunnur innlendra fjölmiðla veikst. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands rann 51% auglýsingafjár á Íslandi til alþjóðlegra tæknirisa árið 2024. Þetta hefur gert samkeppni einkarekinna miðla við Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði að enn meiri áskorun. Tillögur stjórnvalda hafa ekki nægjanleg áhrif á rekstur sjónvarpsfrétta þannig að þær geti breytt niðurstöðunni,“ segir í tilkynningu.