Svipmynd frá sauðfjárslátrun í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey. Ljósm. úr safni

Afurðaverð til bænda nær ekki vísitöluhækkun

Afurðastöðvar hafa nú flestar birt verð til bænda fyrir innlagt dilkakjöt í haust. Hækkun frá síðasta ári er frá 4,0 - 5,1% en athygli vekur að tólf mánaða verðbólga samkvæmt Seðlabanka Íslands mælist nú 5,6%. Hækkunin afurðaverðs til bænda nær því ekki vísitöluhækkun. Ofan á hækkun greiða afurðastöðvarnar viðbótar álag sem útfært er með ýmsum hætti.