Unnið við holuviðgerðir á Akrafjallsvegi í dag

Frá klukkan 9-16 í dag, mánudaginn 31. ágúst, stefnir Colas á að gera holuviðgerðir á Akrafjallsvegi. Umferð verður handstýrt á kafla þegar það þarf og hægt verður á umferðarhraða. „Vinsamlegast virðið merkingar og hraðatakmarkanir. Búast má við einhverjum smá umferðatöfum,“ segir í tilkynningu.