Karri á vaktinni. Ljósm. gó

Tímabil rjúpnaveiða ákveðið

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest veiðitímabil rjúpu í ár. Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum á tímabili sem ákveðið er sérstaklega innan hvers veiðisvæðis. Hér á Vesturlandi verður leyft að veiða dagana 23. október til 1. desember. Ítrekað er að sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila og annarra.