Fréttir

true

Vel heppnaðir tónleikar og frábær skemmtun

Minningarsjóður sem stofnaður var í minningu Heimis Klemenzsonar hélt síðastliðið föstudagskvöld tónaveislu í Hjálmakletti. Í upphafi kynnti Jónína Erna Arnardóttir, ein þeirra er skipa stjórn sjóðsins, dagskrá kvöldsins. Segja má að hvert og eitt atriði hafi verið einstakt. Í upphafi söng frábær barnakór, Æskukórinn, undir stjórn Theodóru Þorsteinsdóttur. Síðan rak hvert atriði annað. Frænkur Heimis…Lesa meira

true

Þurfa að leggja nýja klæðningu á hluta vegarins

„Nauðsynlegt er að ráðast í lagfæringar á hluta Snæfellsnesvegar við Kaldármela þar sem nýlagt klæðingarlag skemmdist skömmu eftir útlögn sl. fimmtudag. Verktaki mun fræsa upp klæðingarlagið á kaflanum og leggja það að nýju við fyrsta tækifæri,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Fram kemur að rannsóknir sem gerðar hafa verið staðfesti að skemmdirnar séu bundnar við…Lesa meira

true

Álfheiður skiptir um vettvang

Álfheiður Ágústsdóttir, sem undanfarin sex ár hefur gegnt starfi forstjóra Elkem Ísland á Grundartanga, hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Travel Connect og tekur til starfa þar í september. Fjármála- og innkaupastarfsemi félagsins fellur undir hennar svið, sem og dótturfélög samstæðunnar. „Ráðning Álfheiðar er liður í að styrkja stjórnendateymi Travel Connect fyrir næsta vaxtarskeið félagsins. Hún tekur…Lesa meira

true

Skipuð í nýtt embætti sýslumanns fyrir landið

Kristín Þórðardóttir hefur verið skipuð í nýtt embætti sýslumanns. Hún tók við stöðunni í síðustu viku. Frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns var samþykkt á Alþingi í febrúar síðastliðnum. Með lögunum verða núverandi níu sýslumannsembætti sameinuð í eitt embætti sýslumanns frá og með 1. janúar næstkomandi. Þá verður landið eitt umdæmi með starfsstöðvar um land…Lesa meira

true

Kaffisala til styrktar uppbyggingu í Ölveri – myndasyrpa

Kaffisala fór fram í sumarbúðunum Ölveri um helgina þar sem safnað var fé til áframhaldandi uppbyggingar á staðnum. Meðal verkefna sem stefnt er að eru bygging íþróttahúss og frekari lagning og endurbætur göngustíga í skóglendinu umhverfis sumarbúðirnar. Náttúran skartaði sínu fegursta og veðrið lék við gesti þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði. Og veittar velgjörðir…Lesa meira

true

Skráning í yngri flokka ÍA

Skráning í knattspyrnustarf yngri flokka Knattspyrnufélags ÍA hefst í dag klukkan 16 þegar opnað verður fyrir skráningar í Abler. Æfingagjöldin gilda fyrir tímabilið 1. september til 31. desember en æfingar standa til 13. desember þegar jólafrí tekur við. Skráningu lýkur 1. október kl. 16 en eftir þann tíma þurfa nýir iðkendur að hafa samband við…Lesa meira

true

Keppt var í hrútadómum á Ströndum

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum 2026 var haldið í Sauðfjársetrinu á Ströndum í gær. Veðrið lék við gesti sem að þessu sinni voru færri en á mótum síðustu ára. Úrslit urðu þau að í flokki vanra hrútaþuklara varð Karl Kristjánsson bóndi á Kambi í fyrsta sæti, Jón Þór Guðmundsson í Galtarholti í öðru sæti og Bjarki Reynisson…Lesa meira

true

Geirlaugur Árnason – aldarminning

Í dag eru hundrað ár frá fæðingu Geirlaugs Árnasonar á Akranesi, en hann var fæddur 24. ágúst 1926, sonur Árna B Sigurðssonar bakara, málara og rakara og konu hans Þóru Einarsdóttir Möller húsfreyju. Eiginkona Geirlaugs var Sveinbjörg Heiðrún Arnmundsdóttir og börn þeirra í aldursröð; Inga Þóra, Kári, Hörður, Þuríður Erna, Laufey og Geirlaug Björg. Fjölskyldan…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík laut í gras fyrir Magna

Víkingur Ólafsvík tapaði 3-1 fyrir Magna í 19. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gær. Magni komst yfir strax á sjöundu mínútu með marki Viðars Más Hilmarssonar en Guðmundur Magnússon jafnaði metin fyrir Víking frá Ólafsvík á 19. mínútu. Staðan var 1-1 þar til á 74. mínútu þegar Guðni Sigþórsson kom Magna aftur yfir.…Lesa meira

true

Stefna á malbikun á hringveginum við Baulu

Mánudagskvöldið 24. ágúst og þriðjudagskvöldið 25. ágúst er stefnt á að malbika hluta Vesturlandsvegar frá Gljúfurá í Borgarfirði og áleiðis upp að Munaðarnesi, framhjá söluskálanum Baulu í Stafholtstungum. Umferð verður stýrt í hollum í gegnum vinnusvæðið af starfsmönnum verktakafyrirtækisins. Því má búast við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til kl.…Lesa meira