Geirlaugur með örverpið sitt og nöfnu; Geirlaugu Björgu ársgamla. Ljósmyndir úr einkasafni

Geirlaugur Árnason – aldarminning

Í dag eru hundrað ár frá fæðingu Geirlaugs Árnasonar á Akranesi, en hann var fæddur 24. ágúst 1926, sonur Árna B Sigurðssonar bakara, málara og rakara og konu hans Þóru Einarsdóttir Möller húsfreyju. Eiginkona Geirlaugs var Sveinbjörg Heiðrún Arnmundsdóttir og börn þeirra í aldursröð; Inga Þóra, Kári, Hörður, Þuríður Erna, Laufey og Geirlaug Björg. Fjölskyldan og afkomendur þeirra fylla nú á níunda tuginn.