
Stefna á malbikun á hringveginum við Baulu
Mánudagskvöldið 24. ágúst og þriðjudagskvöldið 25. ágúst er stefnt á að malbika hluta Vesturlandsvegar frá Gljúfurá í Borgarfirði og áleiðis upp að Munaðarnesi, framhjá söluskálanum Baulu í Stafholtstungum. Umferð verður stýrt í hollum í gegnum vinnusvæðið af starfsmönnum verktakafyrirtækisins. Því má búast við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til kl. 07:00 að morgni báða dagana. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu frá Colas.
Töluvert var um bikblæðingar á þessum kafla hringvegarins síðasta sumar en nú verður ráðist í malbikun á honum í því skyni að fyrirbyggja slíkar blæðingar og bæta ástand vegarins. Alla jafnan er bundna slitlagið á Hringveginum á þessu svæði klæðing. Vegagerðin stefnir jafnframt að því að malbika fleiri klæðingarkafla á Hringveginum (1) frá Borgarnesi á næstu árum. Framkvæmdin við Baulu er liður í áframhaldandi uppbygginu og viðhaldi vegarins á þessum hluta Hringvegarins (1).