
Víkingur Ólafsvík laut í gras fyrir Magna
Víkingur Ólafsvík tapaði 3-1 fyrir Magna í 19. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gær. Magni komst yfir strax á sjöundu mínútu með marki Viðars Más Hilmarssonar en Guðmundur Magnússon jafnaði metin fyrir Víking frá Ólafsvík á 19. mínútu. Staðan var 1-1 þar til á 74. mínútu þegar Guðni Sigþórsson kom Magna aftur yfir. Fjórum mínútum síðar skoraði Gunnar Darri Bergvinsson þriðja mark heimamanna og innsiglaði 3-1 sigur.