Fréttir

true

Andstæðingar Evrópusambands umsóknar héldu íbúafund

Hreyfingin Áfram Ísland, sem er grasrótarhópur fólks sem mótfallið er að Ísland taki upp aðildarviðræður við Evrópusambandið, hélt opinn fund í sal Brekkubæjarskóla á Akranesi síðdegis í gær. Í fundarboði sagði: „Áfram Ísland er helgað baráttu sem drifin verður áfram af jákvæðni og bjartsýni. Áfram Ísland er hreyfing fólks með fjölbreyttan bakgrunn og frá ólíkum…Lesa meira

true

AFS leitar að fósturfjölskyldum fyrir skiptinema

AFS á Íslandi eru sjálfboðaliðasamtök sem bjóða ungmennum á aldrinum 15-18 ára að fara í skiptinám til erlendra ríkja, auk þess að taka á móti erlendum skiptinemum hingað til lands. AFS á Íslandi leitar nú að fleiri fósturfjölskyldum fyrir erlenda skiptinema sem koma til landsins 14. ágúst nk. Enn vantar heimili fyrir 14 ungmenni og…Lesa meira

true

Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst

Landsmenn ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst nk. þar sem spurt verður hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Atkvæðagreiðslan snýst ekki um hvort Ísland gangi í Evrópusambandið heldur eingöngu um hvort viðræður um mögulega aðild verði teknar upp á ný. Viðmiðunardagur kjörskrár vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar er á hádegi miðvikudaginn 22. júlí. Viðmiðunardagur kjörskrár…Lesa meira

true

Hálendisvaktin í fullu fjöri

Hálendisvakt björgunarsveita Landsbjargar er að störfum. Eins og fram kom í Skessuhorni fyrr í sumar voru það félagar úr björgunarsveitinni Súlum sem riðu á vaðið í Landmannalaugum. Að þeim loknum tóku Mosfellingar í björgunarsveitinni Kyndli við en eftir þeim var röðin komin að Vesturlandi, en félagar úr Lífsbjörgu í Ólafsvík og Ósk í Dölum stóðu…Lesa meira

true

Safnað fyrir Maríu

Vinir Maríu Magnúsdóttur í Borgarnesi hafa hrundið af stað fjársöfnun þar sem biðlað er til fólks að leggja henni lið í því verkefni sem hún nú tekst á við. Eftirfarandi texti skýrir málavöxtu: „Þann 18. mars síðastliðinn fékk María Magnúsdóttir þær erfiðu fréttir að hún væri með bráðahvítblæði. Hún hóf strax meðferð hér heima sem…Lesa meira

true

Breyta þarf fjölmörgum reglugerðum vegna færslu verkefna

Alþingi samþykkti fyrr í sumar frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem snertir heilbrigðiseftirlit í landinu. Í raun er verið að leggja niður heilbrigðisnefndir sveitarfélaga, horfið frá hefðbundinni svæðaskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar. Í Samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að…Lesa meira

true

Opna á laugardaginn sýningu tileinkaða Sigga Skarp

Laugardaginn 18. júlí verður í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri opnuð sérstök sýning sem tileinkuð er Sigurði Skarphéðinssyni. Siggi Skarp, eins og hann var jafnan kallaður, hafði það ævistarf að vinna við viðhald og viðgerðir á dráttarvélum, jafnframt því sem hann kenndi eigendum þeirra hvernig ætti að halda þeim gangandi. Hann bjó yfir mikilli þekkingu á…Lesa meira

true

Vindstrengir á Norðvesturlandi

Í dag er búist við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum norðvestanlands. Í ábendingu frá Vegagerðinni kemur fram að hviður geta náð 25 m/s á Steingrímsfjarðarheiði, Húnaflóa og Skagafirði frá hádegi og fram undir miðnætti. Eins getur orðið álíka hvasst í austanverðum Öræfum síðdegis og í kvöld. Þessar aðstæður geta verið varhugaverðar fyrir ökutæki…Lesa meira

true

„Það sem fæðist af ástríðu ber eigið gildi, jafnvel þótt enginn sjái það“

Hollenskur ljósmyndari heldur sýningu í Akranesvita og styrkir björgunarsveitir Orðin í fyrirsögninni lýsa vel lífssýn hollenska ljósmyndarans og rithöfundarins Gerry van Roosmalen, sem opnaði nýverið ljósmyndasýningu í Akranesvita. Þar sýnir hann myndir sem teknar hafa verið víða um Ísland á rúmlega aldarfjórðungi. Sýningin stendur út júlímánuð og verður sérstök að því leyti að öll verkin…Lesa meira

true

Gúrkutíðarfréttir Flemmings úr Evrópuferð sumarið 2026 – fyrsti hluti

Jæja, þá var komið að því: Að fara á mótorhjólinu um Evrópu í hálfan annan mánuð, en ferðin út með Norrænu, frá Seyðisfirði til Hirtshals á Jótlandi, hafði verið pöntuð í svartasta skammdeginu rétt upp úr áramótum. Lagt var af stað austur miðvikudaginn 17. júní, í prýðis veðri og léttskýjuðu, en það átti eftir að…Lesa meira