
AFS leitar að fósturfjölskyldum fyrir skiptinema
AFS á Íslandi eru sjálfboðaliðasamtök sem bjóða ungmennum á aldrinum 15-18 ára að fara í skiptinám til erlendra ríkja, auk þess að taka á móti erlendum skiptinemum hingað til lands. AFS á Íslandi leitar nú að fleiri fósturfjölskyldum fyrir erlenda skiptinema sem koma til landsins 14. ágúst nk. Enn vantar heimili fyrir 14 ungmenni og óttast samtökin að einhver þeirra geti misst af tækifærinu til að dvelja á Íslandi takist ekki að finna fleiri fjölskyldur á næstu vikum.
Sérstaklega er leitað til íbúa á Vesturlandi og Vestfjörðum. Samkvæmt AFS hefur þátttaka fjölskyldna á þessum svæðum verið góð í gegnum tíðina, en í ár hefur aðeins ein fjölskylda á Vesturlandi ákveðið að taka á móti skiptinema og enn hefur engin fjölskylda á Vestfjörðum boðist til að hýsa. Markmið AFS er að skiptinemar fái tækifæri til að kynnast sem flestum landshlutum og upplifa íslenskt samfélag víða um land. Samtökin benda á að með því að opna heimili sitt fyrir skiptinema gefist fjölskyldum einstakt tækifæri til að kynnast nýrri menningu, mynda alþjóðleg vináttubönd og öðlast reynslu sem margir lýsa sem afar gefandi.
Jafnframt er leitað að bráðabirgðafjölskyldum sem geta tekið á móti skiptinema fyrstu vikurnar á meðan varanlegt heimili er fundið. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við AFS á netfanginu info-isl@afs.org. Frekari upplýsingar um að gerast fósturfjölskylda má finna á vefsíðu samtakanna. Saman er hægt að hjálpa þessum ungu einstaklingum að láta draum sinn um skiptinám á Ísland rætast.