
Fundarstjóri og frummælendur á fundinum. F.v. Halldór Benjamín Þorbergsson, Vilhjálmur Birgisson, Valdís Marselía Þórðardóttir og Álfheiður Ágústsdóttir. Ljósm. mm
Andstæðingar Evrópusambands umsóknar héldu íbúafund
Hreyfingin Áfram Ísland, sem er grasrótarhópur fólks sem mótfallið er að Ísland taki upp aðildarviðræður við Evrópusambandið, hélt opinn fund í sal Brekkubæjarskóla á Akranesi síðdegis í gær. Í fundarboði sagði: „Áfram Ísland er helgað baráttu sem drifin verður áfram af jákvæðni og bjartsýni. Áfram Ísland er hreyfing fólks með fjölbreyttan bakgrunn og frá ólíkum sviðum íslensks þjóðfélags. Samnefnarinn er að íslenska þjóðin sé fullfær um að sækja fram um leið og hún tekst á við áskoranir sem við blasa hverju sinni. Stór hluti þjóðarinnar telur að Ísland sé land tækifæranna og að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB.“