Vindstrengir á Norðvesturlandi

Í dag er búist við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum norðvestanlands. Í ábendingu frá Vegagerðinni kemur fram að hviður geta náð 25 m/s á Steingrímsfjarðarheiði, Húnaflóa og Skagafirði frá hádegi og fram undir miðnætti. Eins getur orðið álíka hvasst í austanverðum Öræfum síðdegis og í kvöld.