Safnað fyrir Maríu

Vinir Maríu Magnúsdóttur í Borgarnesi hafa hrundið af stað fjársöfnun þar sem biðlað er til fólks að leggja henni lið í því verkefni sem hún nú tekst á við. Eftirfarandi texti skýrir málavöxtu:

„Þann 18. mars síðastliðinn fékk María Magnúsdóttir þær erfiðu fréttir að hún væri með bráðahvítblæði. Hún hóf strax meðferð hér heima sem hefur verið bæði löng og krefjandi. María dvaldi í um átta vikur á spítala og hefur barist af ótrúlegum styrk. Þessi greining kom á sérstaklega erfiðum tíma. Fyrir ekki svo löngu gekk María í gegnum baráttu við brjóstakrabbamein og á sama tíma vakti hún og svaf við hlið elsku dóttur sinnar, Birtu Bjarkar, sem glímdi sjálf við krabbamein og lést í janúar síðastliðnum. Það er erfitt að ímynda sér þær raunir sem hún hefur þurft að takast á við.

Nú hefur María loksins fengið dagsetningu fyrir næsta stóra skref í baráttunni. Þriðjudaginn 4. ágúst heldur hún til Lundar í Svíþjóð ásamt æskuvinkonu sinni, Jóu, þar sem hún mun undirbúa beinmergs skipti. Meðferðin hefst 8. ágúst og gert er ráð fyrir að hún þurfi að dvelja þar í að minnsta kosti þrjá mánuði.

Það er stórt skref að yfirgefa heimilið sitt, elsku Magnús Baldur, fjölskyldu og allt sem er kunnuglegt til að takast á við svona krefjandi meðferð. Þó að heilbrigðiskerfið standi vel að baki henni fylgir þessu ýmiss konar kostnaður og fjárhagslegt álag sem bætist ofan á allt hitt.

Með hennar leyfi viljum við því biðja þá sem geta og vilja að leggja henni lið. Engin upphæð er of lítil því eins og við vitum öll: Margt smátt gerir eitt stórt. Ef þú hefur tök á að styrkja Maríu á þessum erfiða kafla væri það henni ómetanleg hjálp.“

Bankaupplýsingar: 0370-13-056858 Kt. 080869-4019