Opna á laugardaginn sýningu tileinkaða Sigga Skarp

Laugardaginn 18. júlí verður í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri opnuð sérstök sýning sem tileinkuð er Sigurði Skarphéðinssyni. Siggi Skarp, eins og hann var jafnan kallaður, hafði það ævistarf að vinna við viðhald og viðgerðir á dráttarvélum, jafnframt því sem hann kenndi eigendum þeirra hvernig ætti að halda þeim gangandi. Hann bjó yfir mikilli þekkingu á hvernig þessi tæki virka og hafði lag á að koma vélum í gang sem eitthvað amaði að. Siggi Skarp var einn af stofnendum Fergusonfélagsins, sem í upphafi var hópur áhugafólks um Ferguson dráttarvélar, en félagið útvíkkaði fljótt starfssviðið og nær það yfir allar tegundir gamalla landbúnaðartækja. Þarna var kominn vettvangur manna sem hafði áhuga á að gera upp gömlu vélarnar, miðla þekkingu sín á milli og jafnframt styðja við þá sem voru að stíga sín fyrstu skref í uppgerð véla. Þar lágu leiðir Sigga Skarp og Landbúnaðarsafnsins saman, því hann leiðbeindi á námskeiðum sem safnið stóð fyrir. Einnig hafði hann forgöngu um uppgerð ýmissa gripa sem safninu voru svo færðir og kom að starfi Fergusonfélagsins í tengslum við opna daga safnsins í gegnum árin.

Að frumkvæði Fergusonfélagsins hefur nú þessi sýning verið sett upp, þar sem framlag Sigga Skarp til uppgerðar og viðhalds eldri dráttarvéla er heiðrað, og honum þökkuð sú mikla vinna sem ýtti undir bæði starf Ferguson félagsins en jafnframt styður við starf Landbúnaðarsafnsins með gripum sem eru hluti af safnkosti þess en ekki síður því að reglulega eru haldnir opnir dagar, þar sem safnið lifnar við og færist líf í gamlar vélar.

Sýningarhöfundur er Anna Heiða Baldursdóttir, sérfræðingur hjá Landbúnaðarsafninu. Stofa Sigga Skarp er í einni af súrheysgryfjum í hlöðu Halldórsfjóss og er viðbót við grunnsýningu safnsins.