
Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst
Landsmenn ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst nk. þar sem spurt verður hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Atkvæðagreiðslan snýst ekki um hvort Ísland gangi í Evrópusambandið heldur eingöngu um hvort viðræður um mögulega aðild verði teknar upp á ný. Viðmiðunardagur kjörskrár vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar er á hádegi miðvikudaginn 22. júlí. Viðmiðunardagur kjörskrár segir til um hvar kjósendur eru skráðir á kjörskrá. Ef kjósandi flytur lögheimili sitt eftir þann tíma er hann enn á kjörskrá miðað við fyrra heimilisfang.