Breyta þarf fjölmörgum reglugerðum vegna færslu verkefna

Alþingi samþykkti fyrr í sumar frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem snertir heilbrigðiseftirlit í landinu. Í raun er verið að leggja niður heilbrigðisnefndir sveitarfélaga, horfið frá hefðbundinni svæðaskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar. Í Samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að þeim reglugerðarbreytingum sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og eru til samræmis umræddum lagabreytingum. Alls er um að ræða breytingar á 57 reglugerðum.