Fréttir

true

Opna á laugardaginn sýningu tileinkaða Sigga Skarp

Laugardaginn 18. júlí verður í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri opnuð sérstök sýning sem tileinkuð er Sigurði Skarphéðinssyni. Siggi Skarp, eins og hann var jafnan kallaður, hafði það ævistarf að vinna við viðhald og viðgerðir á dráttarvélum, jafnframt því sem hann kenndi eigendum þeirra hvernig ætti að halda þeim gangandi. Hann bjó yfir mikilli þekkingu á…Lesa meira

true

Vindstrengir á Norðvesturlandi

Í dag er búist við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum norðvestanlands. Í ábendingu frá Vegagerðinni kemur fram að hviður geta náð 25 m/s á Steingrímsfjarðarheiði, Húnaflóa og Skagafirði frá hádegi og fram undir miðnætti. Eins getur orðið álíka hvasst í austanverðum Öræfum síðdegis og í kvöld. Þessar aðstæður geta verið varhugaverðar fyrir ökutæki…Lesa meira

true

„Það sem fæðist af ástríðu ber eigið gildi, jafnvel þótt enginn sjái það“

Hollenskur ljósmyndari heldur sýningu í Akranesvita og styrkir björgunarsveitir Orðin í fyrirsögninni lýsa vel lífssýn hollenska ljósmyndarans og rithöfundarins Gerry van Roosmalen, sem opnaði nýverið ljósmyndasýningu í Akranesvita. Þar sýnir hann myndir sem teknar hafa verið víða um Ísland á rúmlega aldarfjórðungi. Sýningin stendur út júlímánuð og verður sérstök að því leyti að öll verkin…Lesa meira

true

Gúrkutíðarfréttir Flemmings úr Evrópuferð sumarið 2026 – fyrsti hluti

Jæja, þá var komið að því: Að fara á mótorhjólinu um Evrópu í hálfan annan mánuð, en ferðin út með Norrænu, frá Seyðisfirði til Hirtshals á Jótlandi, hafði verið pöntuð í svartasta skammdeginu rétt upp úr áramótum. Lagt var af stað austur miðvikudaginn 17. júní, í prýðis veðri og léttskýjuðu, en það átti eftir að…Lesa meira

true

Gæðingar og góðir knapar á Landsmóti hestamanna

Landsmóti hestamannafélaga lauk á Hólum í Hjaltadal á laugardagskvöldið, en mótið stóð í rétta viku. Landsmót er haldið annað hvert ár og er sem fyrr einstök hátíð þar sem unnendur íslenska hestsins koma saman til að fagna hestinum, ræktuninni, íþróttinni og þeirri menningu sem hefur þróast í kringum íslenska hestinn í gegnum aldir. Á mótið…Lesa meira

true

Góður afli þrátt fyrir erfiðar aðstæður í Hraunsfirði

Þrátt fyrir hvassan vind, úrhellisrigningu, moldarlitað vatn og krefjandi aðstæður í Hraunsfirði á Snæfellsnesi á mánudagskvöldið síðasta, skiluðu tveir veiðifélagar glæsilegum afla eftir nýafstaðinn veiðitúr. Undirbúningur og reynsla skiptu þar sköpum en veiðimennirnir höfðu áður kannað svæðið og fundið hvar stóru bleikjurnar héldu sig. Allur aflinn, eða alls 10 bleikjur, fékkst á aðeins tvær heimahannaðar…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður gagnrýnir skerðingu á almenningssamgöngum

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar lýsir yfir áhyggjum af fyrirhugaðri skerðingu á þjónustu landsbyggðarvagna til og frá Akranesi. Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins mánudaginn 6. júlí í kjölfar tilkynningar frá Vegagerðinni um væntanlegar breytingar á þjónustunni. Í bókun ráðsins er bent á að fjölmargir Akurnesingar treysti daglega á almenningssamgöngur til að sækja vinnu og…Lesa meira

true

„Ég hef aldrei látið aðra ákveða hvað ég get“

Forvitnin hefur alltaf rekið Runólf áfram Runólfur Þór Sigurðsson byggingatæknifræðingur lærði ungur húsasmíði en settist aftur á skólabekk 35 ára gamall. Hann glímdi við alvarleg veikindi í miðju tæknifræðinámi en byggði síðar upp fyrirtæki sem hefur komið að hönnun hundruða mannvirkja um allt land. Hann segir forvitnina hafa verið sinn sterkasta drifkraft frá unga aldri.…Lesa meira

true

Mikil aukning í bókunum á sólarlandaferðum vegna slæmrar veðurspár

Eftirspurn eftir utanlandsferðum til sólríkra áfangastaða hefur aukist verulega síðustu daga samhliða úrkomusamri veðurspá fyrir Ísland, einkum vestur,- norðvestur- og suðvestur horn landsins. Samkvæmt upplýsingum frá ferðaskrifstofum hafa bókanir aukist það mikið að bæta hefur þurft við flugferðum til að mæta eftirspurn. Sérstaklega hefur borið á því að fólk bóki með mjög skömmum fyrirvara og…Lesa meira

true

Töluverðar skemmdir unnir á laugarhúsi Hreppslaugar

Lögreglan á Vesturlandi hefur nú til rannsóknar innbrot sem framið var í laugarhúsið við Hreppslaug í Skorradal í fyrrinótt. Töluverðar skemmdir voru unnar á hurð og dyrabúnaði og þá var sjóðsvél stolið og fleiri smærri hlutum. Ungmennafélagið Íslendingu á og rekur Hreppslaug og reka ungmennafélagar laugina í sjálfboðavinnu. Laugin sjálf er friðuð en laugarhúsið er…Lesa meira